Afkoma mjólkurframleiðenda 2022-2024

Komin er út skýrsla um rekstur og afkomu í mjólkurframleiðslu fyrir árin 2022-2024 en hún byggir á gögnum frá 200-204 kúabúum. Á árinu 2024 var mjólkurframleiðslan á þessum búum samtals um 52,4% af innlagðri mjólk á landvísu.

Í skýrslunni kemur fram að framlegðarstig í mjólkurframleiðslu árið 2024 er nánast óbreytt frá árinu áður eða 53,5%. Rekstrarárið 2023 var framlegðarstigið 53,4% og hafði þá hækkað úr 50,6% frá árinu 2022. Til að ná frekari afkomubata þarf jákvætt samspil ýmissa þátta, svo sem afurðaverðs, ríkisstuðnings, kynbóta, áframhaldandi hagræðingar í rekstri búanna og síðast en ekki síst hagfelldara vaxtaumhverfi. Það er forsenda nýliðunar og framþróunar í búgreininni.

Sjá nánar:
Skýrsla - Rekstur kúabúa 2017-2020

/sk