Út er komin skýrsla frá RML um rekstur og afkomuþróun sauðfjárbúa fyrir árin 2022-2024. Sú skýrsla er unnin út frá rekstrargögnum samtals 199 sauðfjárbúa af landinu öllu. Innlagt dilkakjöt þátttökubúanna var 28,8% af heildarframleiðslu dilkakjöts árið 2024. Það hlutfall, ásamt samanburði á gögnum frá fyrra ári, bendir til að gögnin gefi góða mynd af stöðu og þróun í greininni.
Meðalbúið í verkefninu var með 469 skýrslufærðar kindur og framleiddi að jafnaði 21,1 kg dilkakjöts á hverja þeirra, sem var lakasta niðurstaða þátttökubúa frá upphafi verkefnisins sem skýrist fyrst og fremst af erfiðu tíðarfari víða um land það vor og sumar.

Niðurstöðurnar sýna að afkoma íslenskra sauðfjárbúa er svipuð og árið 2023 að meðaltali en breytileiki milli búa fer vaxandi sem að hluta má tengja má við árferði. Á meðfylgjandi mynd koma áhrif afurðasemi á afkomu glögglega fram. Með hækkandi afurðaverði eykst ávinningur af góðri bústjórn og því að ná góðum afurðum eftir hverja vetrarfóðraða á. Munur á afkomu búanna liggur einnig í greiðslumarkseign þeirra og bústærð, tekjusamsetningu og ólíkri kostnaðardreifingu.
Framleiðslukostnaður dilkakjöts árið 2024 reiknast 1.862 kr./kg að jafnaði fyrir fjármagnsliði og afskriftir. Eins og áður er hann mjög breytilegur en fer stiglækkandi með aukinni bústærð. Framleiðslukostnaður dilkakjöts að meðtöldum fjármagnsliðum og afskriftum er 2.478 kr./kg.
Helstu tækifæri sauðfjárbænda liggja í aukinni afurðasemi og lægri breytilegum kostnaði á hvert framleitt kíló dilkakjöts. Munurinn á milli búa í efsta þriðjungi framlegðarstigs og neðsta þriðjungi er um 662 kr./kg árið 2024 eða sem svarar 6,3 milljónum kr. sé hann reiknaður á meðalinnlegg þátttökubúsins.
Meðalatvinnutekjur á Íslandi árið 2024 voru 792 þúsund krónur á mánuði og reiknast mánaðarlaun sauðfjárbúa aðeins um 45% af meðallaunum í landinu.
Öllum þátttakendum hafa þegar verið sendar skýrslur með niðurstöðum þeirra og við þökkum þeim kærlega fyrir þátttökuna í verkefninu. Mikilvægi þessa verkefnis fer stöðugt vaxandi og verður því haldið áfram en gagnasöfnun fyrir árið 2025 er þegar hafin. Nýir þátttakendur eru að sjálfsögðu boðnir velkomnir í verkefnið hvenær sem er.
Sjá nánar hér: Rekstur sauðfjárbúa 2022-2024
/ghá