Áhrif mismunandi kornskammta á vaxtarhraða holdablendinga - ný skýrsla RML

RML hefur birt nýja skýrslu um umfangsmikla fóðurathugun sem framkvæmd var í Hofsstaðaseli á árunum 2022–2024. Markmið verkefnisins var að meta áhrif mismunandi kornskammta á vöxt holdablendinga, eldistíma og rekstrarafgang við innieldi.

Í tilrauninni voru 108 nautkálfar skiptir í þrjá fóðurflokka (0%, 20% og 36% korn) og þrjá aldurshópa. Niðurstöður sýna skýrt að aukið kornhlutfall styttir eldistíma verulega og eykur daglegan vöxt án þess að hafa neikvæð áhrif á gæðaflokkun kjöts (EUROP). Naut sem fengu 36% korn náðu 630 kg lífþunga 117 dögum fyrr en þau sem fengu eingöngu gróffóður.

Einnig voru vísbendingar um að eldri kálfar, fæddir fyrr um vorið, skiluðu bestum árangri. Þeir voru þyngri við fráfærur, þurftu styttra innieldi og skiluðu hæsta rekstrarafgangi. Munurinn á afkomu milli yngstu og elstu hópa nam rúmum 11 milljónum króna á ársgrundvelli miðað við gefnum forsendum.

Skýrslan dregur fram mikilvægi gæðis gróffóðurs, markvissrar kornfóðrunar, stöðugs umhverfis í eldi og ekki síst tímasetningar burðartíma. Með burði í apríl/maí verður innieldið styttra og nýting húsakosts betri. Í niðurstöðunum voru jafnframt vísbendingar um að nýtt Angus-erfðaefni skilar auknum vexti og styttri eldistíma.

Niðurstöðurnar benda til að bætt skipulag ræktunar og fóðrunar geti verulega styrkt rekstrargrundvöll íslenskrar nautakjötsframleiðslu.

Verkefnið var styrkt af Þróunarfé nautgriparæktar. Samstarfsaðilar voru Hofsstaðasel og Landbúnaðarháskóli Íslands.

Í framhaldi var gert kjötrannsókn á 48 nautum úr athuguninni til að kanna áhrif kornfóðrunar á gæði og eiginleika nautakjöts. Að auki var gerð neytendakönnun til að afla upplýsingar um kröfur og upplifun neytenda. Áhrif aukins kornhlutfalls á hryggvöðva voru m.a. aukin innanvöðvafitu og fitusprenging og jákvæðari upplifun neytenda.

Verkefnið um kjötgæði var styrkt af Matvælasjóð. Samstarfaðilar í verkefnið um kjötgæði voru Matís (verkefnistjórn), Hofsstaðasel, Landbúnaðarháskóli Íslands, Kjötafurðastöð kaupfélags Skagfirðinga og Ferskar kjötvörur.

Sjá nánar:
Áhrif fóðrunar á gæði kjöts af íslenskum holdablendingum
Áhrif mismunandi kornskammta á vaxtarhraða holdablendinga 

/okg