NorFor er norrænt samstarf um fóðurmat og fóðuráætlanagerð fyrir mjólkurkýr. Samstarfið er í eigu leiðandi landbúnaðarsamtaka í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi. Starfsemin byggist á samstarfsneti atvinnulífs og háskóla, þar sem lögð er rík áhersla á vísindalega þróun og hagnýtingu í starfi.
Nú er leitað að framkvæmdastjóra NorFor til að leiða samstarfið og vinna að áframhaldandi þróun þess. Starfið felur í sér heildarábyrgð á samhæfingu, þróun og samskiptum við hagaðila, ásamt nánu samstarfi innan norræns tengslanets eigenda, samstarfsaðila og rannsóknarumhverfa.
Helstu ábyrgðarsvið
- Tryggja stöðuga líffræðilega og tæknilega þróun NorFor-líkansins.
- Tryggja að NorFor haldi gildi sínu til lengri tíma, bæði frá viðskiptalegu sjónarmiði og með hliðsjón af þörfum notenda, meðal annars á sviði sjálfbærni.
- Viðhalda og þróa tengsl við viðskiptavini og eigendur.
- Efla samstarf og stuðla að sameiginlegri stefnu innan samstarfsnets NorFor.
- Skipuleggja og forgangsraða þróunarverkefnum ásamt stjórnendateyminu í samræmi við samþykkta stefnu og tryggja framvindu og skil.
- Tryggja skýr og skilvirk samskipti, bæði innan starfseminnar og út á við.
- Koma á og viðhalda nánu samstarfi milli NorFor og viðeigandi háskóla á Norðurlöndunum.
- Þróa og tryggja skilvirka stjórnsýsluferla, þar á meðal reikningagerð, bókhald og skýrslugjöf.
- Bera heildarábyrgð á fjármálum NorFor, þar á meðal rekstraráætlun og fjárhagsáætlun.
- Undirbúa mál fyrir stjórn, tryggja að þau hafi viðeigandi stuðning og fylgja þeim eftir með skýrslugjöf.
Hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun rekstrar, til dæmis með verkefnastjórnun eða stjórnunarstarfi, þar með talin samskipti við stjórnir.
- Viðeigandi þekking eða reynsla á sviði landbúnaðar, helst mjólkurframleiðslu.
- Viðeigandi háskólamenntun.
- Mikil samstarfshæfni og geta til að starfa þvert á stofnanir og fyrirtæki.
- Góð færni í ensku.
Kostir
- Þekking á fóðurmati fyrir mjólkurkýr.
- Góð færni í einu af norrænu tungumálunum.
Ráðning og starfshlutfall
Valinn umsækjandi fær boð um fullt starf eða hlutastarf hjá einum af norrænum samstarfsaðilum NorFor: L&F eða Seges í Danmörku, TINE í Noregi, Växa í Svíþjóð eða RML á Íslandi.
Starf framkvæmdastjóra NorFor samsvarar um 50% starfshlutfalli. Þeim tíma sem eftir stendur má ráðstafa til annarra viðeigandi verkefna hjá viðkomandi vinnuveitanda, með hliðsjón af hæfni, áhugasviði og þörfum stofnunarinnar eða fyrirtækisins.
Umsókn
Við hlökkum til að taka á móti umsókn þinni á ensku eigi síðar en 23. september 2026.
(Því miður slæddist inn villa varðandi umsóknarfrest sem átti að vera 21. sept en ekki 21. okt en veittur er frestur til miðvikudagsins 23 sept.)
Umsóknum skal skilað í gegnum eina af ráðningargáttum eigenda NorFor.: Hlekkur á umsóknareyðublað hjá RML.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar veitir Fredrik von Unge, stjórnarformaður NorFor. fredrik.vonunge@vxa.se, +46 702 981195
Information in English:
Director of NorFor amba Information
Link to application on NorFor site
/hh