Gróður er enn í fullum sumarskrúða og sannkölluð sumarblíða þessa dagana. Það styttist samt í göngur, réttir og önnur hauststörf. Sláturhúsin eru eflaust farin að kalla eftir sláturfjárloforðum og tímasetning á fjárragi farin að skýrast hjá mörgum bændum.
Við viljum minna bændur á að panta lambadóma fyrr en seinna svo skipuleggja megi þessa vinnutörn með sem hagkvæmustum hætti fyrir alla. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem berast fyrir 20. ágúst forgangs hvað varðar óskatímasetningu hjá hverjum og einum. Talsvert er komið inn af pöntunum og því um að gera að draga það ekki lengi að panta tíma fyrir sínn lambahóp.
Eftirtaldir starfsmenn munu sjá um skipulag lambadóma á komandi hausti:
- Gullbringu- og Kjósarsýsla, Borgarfjörður, Snæfellsnes, Dalasýsla, Barðastrandarsýslur og Ísafjarðarsýslur: Árni Brynjar Bragason og Oddný Kristín Guðmundsdóttir
- Strandasýsla og Vestur-Húnavatnssýsla: Sigríður Ólafsdóttir
- Austur-Húnavatnssýsla: Auður Ingimundardóttir
- Skagafjörður og Eyjafjörður: Sigurlína Erla Magnúsdóttir
- Suður-Þingeyjarsýsla: Guðrún Hildur Gunnarsdóttir
- Norður-Þingeyjarsýsla: Steinunn Anna Halldórsdóttir
- Múlasýslur: Guðfinna Harpa Árnadóttir
- Skaftafellsýslur, Rangárvallasýsla og Árnessýsla: Fanney Ólöf Lárusdóttir
Sjá nánar:
Frétt um lambadóma frá 11. júlí
Panta lambadóma
/okg