RML hefur gefið út nýja lokaskýrslu um ómmælingar holdagripa, þar sem fjallað er um áframhaldandi gagnasöfnun til stuðnings framtíðarkynbótastarfi í íslenskri holdagriparækt. Verkefnið byggir á mælingum á bakvöðva og bakfitu lifandi gripa, auk upplýsinga um brjóstmál, þyngd, vöxt og sláturgögn.
Niðurstöðurnar benda til þess að ómmælingar geti orðið gagnlegt verkfæri við mat á holdagripum og val á ásetningsgripum. Tengsl fannst milli ómmældrar vöðvadýptar, stærðar gripa, vaxtar og slátureiginleika. Þá sýna gögnin einnig að einfaldar mælingar, eins og brjóstmál, geta nýst vel þar sem ekki er aðstaða til vigtunar.
Verkefnið er liður í því að byggja upp betri þekkingu og gagnagrunn fyrir íslenska holdagriparækt. Með áframhaldandi söfnun gagna verður hægt að styrkja grundvöll ákvarðana um ræktunarstefnu, gripaval og framleiðslu til framtíðar. Verkefnið var unnið af RML og styrkt af þróunarfé nautgriparæktar.
Sjá nánar:
Ómmælingar holdagripa – áframhaldandi gagnasöfnun til framtíðarkynbótastarfs
/okg