SPROTINN 2019 - Jarðræktarráðgjöf

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur frá upphafi boðið upp á þjónustu- og ráðgjafarpakka í jarðrækt undir heitinu Sprotinn. Viðbrögð bænda hafa verið góð og alls hafa um 150 þátttakendur verið skráðir í þetta verkefni frá upphafi, þátttaka hefur verið mislöng, frá einu ári og upp í fimm ár. Lögð er áhersla á að hafa Sprotann í stöðugri þróun sem tekur mið af reynslu ráðunauta og ábendingum frá þeim bændum sem nýta sér pakkann.

Helsta markmið Sprotans er að bæta nýtingu áburðarefna við framleiðslu á heimafengnu fóðri. Í þeirri vegferð er byrjað á því að aðstoða og leiðbeina bændum við skráningu jarðræktarupplýsinga í jörð.is og gæta þess að túnkortum sé rétt viðhaldið. Þessar skráningar eru mikilvægar til þess að halda utan um sögu ræktarlands en einnig vegna þess að þær eru notaðar til þess að sækja um ræktunarstyrki og landgreiðslur.

Á bújörðum þar sem jarðvegssýni hafa ekki verið tekin nýlega er lögð áhersla á að slíkt sé gert til þess að fá sýn yfir ástand ræktarlands.
Áburðaráætlun er unnin í kjölfarið þar sem notaðar eru upplýsingar sem safnað er í verkefninu. Þegar skráning á áburðarnotkun og uppskeru er orðin markviss gefst kostur á að gera greiningu þar sem þessir þættir eru bornir saman til þess að meta gæði túna með tilliti til gróffóðuröflunar.

Sjá nánar:
SPROTINN - jarðræktarráðgjöf

sj/okg