Sprotinn – jarðræktarráðgjöf

Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins býður upp á ráðgjafarpakka í jarðrækt sem nefnist Sprotinn. Á þeim 7 árum sem liðin eru síðan fyrst var boðið upp á jarðræktarráðgjöf í pakkaformi hefur Sprotinn tekið breytingum til að koma betur til móts við bændur og til að fylgja eftir þróun og breytingum sem orðið hafa.

Ýmsir kostir
Þeim bændum sem nýta sér ráðgjöfina hefur fjölgað jafnt og þétt enda eru ýmsir kostir sem fylgja því að vera í Sprotanum. Má þar nefna aðstoð við skráningar á jarðræktarskýrslum í Jörð.is, skil gagna vegna jarðræktarstyrkja og landgreiðslna, viðhald túnkorta og gerð áburðaráætlunar sem er yfirleitt lokaverkefni Sprotans á hverju ári. Auk þessa er heimsókn ráðunautar að hausti sem hægt er að nýta til skrafs og ráðgerða og hugsanlega jarðvegssýnatöku og ekki er innheimt komugjald vegna hennar. Þess ber að geta að hægt er að velja á milli tveggja misstórra pakka, það er 7 og 11 klukkutíma. Í þeim stærri er meira svigrúm til frekari ráðgjafar svo sem vegna ræktunaráætlunar eða annarra þátta sem bóndi óskar eftir og svigrúm fyrir tvær heimsóknir á búið.

Sveigjanleiki innan Sprotans
Markmiðið með Sprotanum er að veita bændum markvissa ráðgjöf í ræktun og leiðbeina varðandi jarðræktarskýrsluhald í Jörð.is, með það að leiðarljósi að bæta nýtingu áburðar og hagkvæmni fóðuröflunar. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða ráðgjöf þannig að hægt sé að þjónusta hvern og einn eftir þörfum. Þannig getur hver bóndi ákveðið í samráði við ráðunaut hvað leggja eigi áherslu á en það er sérstaklega gott þegar bændur nýta sér ráðgjöf í Sprota árlega. Rétt er að benda á að auðvelt er að aðlaga ráðgjöf innan Sprotans að útiræktun á grænmeti.

Stækkandi hópur
Á síðasta ári voru rúmlega 50 býli sem nýttu sér jarðræktarráðgjöf í gegnum Sprotann. Eitt af því sem gert er fyrir hvert bú er að reikna og setja fram kostnað vegna áburðarnotkunar miðað við skráða uppskeru, sjá meðfylgjandi mynd. Vert er að benda á að upplýsingarnar byggja á skráningum í Jörð.is og ef villa er í þeim kemur hún fram við alla greiningu sem unnin er út frá þeim. Því er mjög mikilvægt að vanda alla skráningu til að gögnin gefi sem réttasta mynd hverju sinni. Þegar myndin er skoðuð er áhugavert að sjá mikinn breytileika milli búa.

Myndin sýnir áburðarkostnað á kg/þurrefnis í uppskeru á mismunandi bæjum. Hér eru nýtanleg áburðarefni í búfjáráburði reiknuð til jafns við verðmæti áburðarefna í tilbúnum áburði. 

Gott að hafa aðhald
Sprotinn er góð leið til að fá leiðbeiningar og ráðgjöf um ræktun. Áherslurnar geta verið breytilegar eftir búum og árum en markmiðið er alltaf að leita nýrra leiða til að gera betur í sinni ræktun á einn eða annan hátt. Svo er ekki verra að fá áminningar um skráningar og skil, það er alltaf gott þegar einhver passar aðeins upp á mann. Hægt er að lesa sér nánar til um Sprotann í gegnum tengil hér að neðan eða fá upplýsingar hjá Þóreyju Gylfadóttur í thorey@rml.is eða í síma 5165027. 

Sjá nánar: 
Sprotinn - Jarðræktarráðgjöf