Kynbótasýningar 25.-29. maí -Minnum á síðasta skráningardag

Lokaskráningardagur er næstkomandi föstudag 15. maí á sýningar sem hefjast eiga 25. maí en það eru sýningarnar á Sörlastöðum í Hafnarfirði, Brávöllum á Selfossi og á Akureyri. Þegar er orðið fullt á allar vorsýningar á Gaddstaðaflötum við Hellu en nóg af plássum á öðrum sýningum. 

Skráning og greiðsla fer fram hér í gegnum heimasíðu RML. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar í gegnum WorldFeng. 

Í ljósi óvenjulegs ástands munum við bregðast við og fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross.

Verð fyrir fullnaðardóm er 28.500 kr. en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 21.900 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð birtist það strax inn á viðkomandi sýningu. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.

Aðeins þau hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sama sýningarári er hægt að skrá eingöngu í reiðdóm. Röðun hrossa til dóms á sýningunum verður birt á heimasíðu RML nokkrum dögum fyrir sýningu.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreitt er 15.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 12.000 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu á hrossinu sem kom í staðinn.

Minnum á eftirfarandi:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hross sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni án undantekninga.

Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna hér á vefnum eða með því að hringja í síma 5165000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.

Sjá nánar
Upplýsingar um skráningar
Sýningargjöld
Skilyrði sem hross þurfa að uppfylla
Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu 
Skrá á kynbótasýningu

hes/okg