Skipulagning sauðfjárdóma í fullum gangi

Í þessari viku verða birt dagatöl sauðfjárdóma hér á vefnum, þau verða svo uppfærð reglulega eftir því sem við á. Eins og áður hefur komið fram njóta pantanir sem bárust fyrir 16. ágúst forgangs við niðurröðun.

Best er að bændur panti sjálfir hér í gegnum vefinn en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntun niður.

Eftitaldir aðilar sjá um skipulagningu lambadóma:

  • Gullbringusýsla, Kjósarsýsla, Borgarfjörður, Snæfellsnes, Vestur-Barðastrandarsýsla og Ísafjarðarsýslur: Árni B. Bragason og Oddný Kristín Guðmundsdóttir
  • Dalasýsla og Austur-Barðarstrandarsýsla: Eyjólfur Ingvi Bjarnason
  • Strandasýsla og Vestur-Húnavatnssýsla: Sigríður Ólafsdóttir
  • Austur-Húnavatnssýsla: Harpa Birgisdóttir
  • Skagafjörður, Eyjafjörður, Suður-Þingeyjarsýsla: Sigurlína Erla Magnúsdóttir og Ditte Clausen
  • Norður-Þingeyjarsýsla: Steinunn Anna Halldórsdóttir
  • Múlasýslur: Guðfinna Harpa Árnadóttir
  • Austur og Vestur-Skaftafellssýslur, Rangárvallasýsla og Árnessýsla: Fanney Ólöf Lárusdóttir

Sjá nánar:
Panta sauðfjárdóma
Dagatal sauðfjárdóma