Yfirlitssýningin í Spretti fer fram föstudaginn 14. júní og hefst kl. 08.00
Hollaröð má nálgast hér á heimasíðunni undir Röðun hrossa á kynbótasýningum.
Yfirlitssýning þriðju sýningarviku á Rangárbökkum fer fram föstudaginn 14. júní og hefst klukkan 08:00.
Hollaröð má nálgast hér á heimasíðunni undir Röðun hrossa á kynbótasýningum.
Áætluð lok sýningar eru um kl. 16:00
Yfirlitssýning fer fram á Brávöllum á Selfossi fimmtudaginn 13. júní og hefst kl. 08:30.
Áætlað er að sýningunni verði lokið um kl. 12:30.
Hollaröð má nálgast í gegnum hnappinn Röðun hrossa á kynbótasýningum á forsíðunni.
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar síðustu 12 mánuðina, þegar maí er á enda runninn, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir nón þann 11. júní.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 441 búi en uppgjör kjötframleiðslunnar náði að þessu sinni til 117 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.139,9 árskúa á búunum 441 var 6.518 kg. eða 6.480 kg. OLM
Kynbótasýningin sem fram fer á Hólum, og hófst í dag, leggur aðeins öðruvísi af stað en venja er. Í dag, mánudag, er einungis verið að sköpulagsdæma hross (sem vera áttu á mánudag og þriðjudag) og á morgun, þriðjudag, koma þessi sömu hross til reiðdóms. Aðrir dagar verða með hefðbundnu sniði. Sýningarstjóri biðlar til knapa og umráðamanna hrossa að vera með puttann á púlsinum til að allt megi ganga sem best.
Þegar hross koma til kynbótadóms eru þau mæld og eru skrokkmálin ellefu eins og sést á meðfylgjandi mynd. Tilgangur mælinganna er að fylgjast með þróun í stærð og hlutföllum íslenska hestsins.
Sýningarnar eru á Rangárbökkum við Hellu (96 hross), Spretti í Kópavogi (56 hross) og Brávöllum á Selfossi (96 hross). Röðun hrossa á þessum sýningum hefur verið birt hér á síðunni. Með því að smella á hnappinn Röðun hrossa á kynbótasýningum hér á forsíðunni, má nálgast nýjustu upplýsingar um hollaröðun sýninga.
Vegna veðurs sem hefur gengið yfir á Norður- og Austurlandi eru þeir bændur sem eiga í erfiðleikum og þurfa á aðstoð að halda hvattir til þess að hafa samband við neyðarsíma 112. Almannavarnir og lögregla er vel meðvituð um það ástand sem bændur standa nú frammi fyrir. Settur hefur verið saman viðbragðshópur til þess að kortleggja ástandið og meta næstu skref.